Wednesday, April 17, 2013

3. Elds er þörf

Elds er þörf
þeim er inn er kominn
og á kné kalinn.
Matar og voða
er manni þörf,
þeim er hefir um fjall farið.

1 comment:

  1. Þetta á auðvitað við á okkar tímum, eins og í gamla daga. Alltaf þegar maður fer um fjöllin og verður kalinn á knjánum þá kveikir maður eld inni hjá sér. Fær sér kaffi.

    Annars segir þetta sig sjálft, þetta eru efnislegar/líkamlegar þarfir.

    Það er merki um stílbragð að vísa í smáatriði til að lýsa heild. Það er ekki sagt, "Elds er þörf þeim er inn er kominn og er mjög kalt." Heldur er sagt "á kné kalinn," sem felur allt hitt í sér. Það býður lesandanum ef til vill að ímynda sér veðrið úti, líkamlegt atgervi, o.s.frv.

    Það að hafa farið um fjall gefur aðra vísbendingu um að löng leið liggi að baki, sem gerir samræðuna áhugaverðari.

    voðir: þurr föt, öfugt við vosklæði

    ReplyDelete