Wednesday, April 17, 2013

5. Vits er þörf

Vits er þörf
þeim er víða ratar.
Dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum situr.

2 comments:

  1. Fyrri parturinn er spakmæli, og seinni parturinn varpar upp andstæðu til að styðja fyrri partinn. Viðmiðið er að sitja með snotrum, þar fellur endanlegur dómur. Það er greinilegt að álit snotra skiptir öllu máli fyrir höfund kvæðisins; ef þú kannt ekkert gætirðu lent í augabrögðum, sem er auðvitað skelfilegt.

    Mér finnst athyglisvert að leggja allan þunga á orðstír, eða "augabragð snotra". Þegar upp er staðið þá er orðstír álit, eða hugsanir annars um sjálfan. Ef orðstír sjálfs er nákvæmlega það sem annar hugsar, þá eru hugsanir annars um sjálfan eilífar og ódauðlegar samkvæmt Hávamálum. Í raunveruleikanum deyja hugsanir um sjálfan með þeim sem hugsa þær, alveg eins og frændur og fé.

    Að vera "snotur" er örugglega mikilvægasta gildið í Hávamálum. Það kemur í ýmsum formum: meðalsnotur, ósnotur, ráðsnotur, alsnotur. Snotur er mildara hugtak en "vitur" því það felur í sér hófsemd og hóflæti auk visku. Það dempar niður sjálfumgleðina sem fylgir því að telja sjálfan sig vitran. Einu heimildirnar um þetta orð er hjá Snorra Sturlusyni (skv. heimasíðu ásatrúarfélagsins) svo hann bjó það mögulega til. Það styður þá tilgátu að Hávamál séu eftir hann.

    Hjá Snorra er Snotra gyðja sem er greind, gáfuð, hyggin, hófsöm, látprúð og skynsöm. Þetta eru manngildi Hávamála. Hér er það kven-erkitýpa um visku sem vísar veginn hjá Snorra/höfundi Hávamála. Ef til vill fannst honum vanta einhverja eiginleika upp á "vitur", annars hefði nægt honum að nota bara "vitur".

    ReplyDelete
  2. aths: orðið "snotur" er eldra en Snorri Sturluson, en merkingin út frá gyðjunni Snotru kemur frá Snorra.

    aths: kannski er réttara að segja að seinni parturinn varpi upp andstæðuPARI, dæmi út frá spakmælunum í fyrri parti.

    ReplyDelete