Svipað og í fyrsta erindi þá vísar fyrri parturinn í raunaðstæður, meðan seinni parturinn gæti verið almennari.
Í fyrri partinum myndast aðgreining milli tveggja; gests og gestgjafa, eða mælanda og hlustanda. Þannig næst skýrari mynd af aðstæðum.
Seinni parturinn gefur vísbendingu um að það skipti máli hvar gesturinn fær sæti, það veltur á stöðu hans, er hann höfðingi eða förumaður? Hér eru tvö atriði sem skipta máli, gestrisni gestgjafans og tækifæri gestsins til að "freista frama" síns, eða sanna sinn orðstír. Bæði gestrisni og orðstír hafa gildi.
Gestgjafinn mun vera Óðinn, en það er spurning hvers konar húsakynni þetta eru. Hvað sér maður fyrir sér, ... hlaðið hús með moldargólfi? Hvar eru þeir að spjalla saman?
Það er órökstudd tilgáta. Ef við metum það út frá textanum sjálfum, þá er minnst á Óðinn í erindi 138 og 143 í þriðju persónu. Kannski er ólíklegt að Óðinn ávarpi sjálfan sig í þriðju persónu. Á sama tíma er mögulegt að síðustu og fyrstu erindin hafi ólíkan uppruna. Síðustu erindin eru um galdra sem voru ætlaðir guðum. Það er spurning hvort dauðlegir menn voru til þess fallnir að gefa ráð um galdra? Í síðasta erindinu er sagt að Hávamál séu allþörf mönnum en óþörf jötnum; sá sem yrkir virðist hafa innsýn í báða heima. Í sama erindi nefnir höfundurinn "háva höll" sem Háva mál eru kveðin í. Sjálfur sé ég fyrir mér Snorra Sturluson í góðum fíling, að varpa fram eigin pælingum í hlöðnu húsi með moldargólfi.
Svipað og í fyrsta erindi þá vísar fyrri parturinn í raunaðstæður, meðan seinni parturinn gæti verið almennari.
ReplyDeleteÍ fyrri partinum myndast aðgreining milli tveggja; gests og gestgjafa, eða mælanda og hlustanda. Þannig næst skýrari mynd af aðstæðum.
Seinni parturinn gefur vísbendingu um að það skipti máli hvar gesturinn fær sæti, það veltur á stöðu hans, er hann höfðingi eða förumaður? Hér eru tvö atriði sem skipta máli, gestrisni gestgjafans og tækifæri gestsins til að "freista frama" síns, eða sanna sinn orðstír. Bæði gestrisni og orðstír hafa gildi.
Gestgjafinn mun vera Óðinn, en það er spurning hvers konar húsakynni þetta eru. Hvað sér maður fyrir sér, ... hlaðið hús með moldargólfi? Hvar eru þeir að spjalla saman?
bráður: óþolinmóður
á bröndum: á gólfi
Er Óðinn gestgjafinn? Ég er ekki viss. Það þarf að fá á hreint, áður en kvæðið er brotið til mergjar.
ReplyDeleteÞað er órökstudd tilgáta. Ef við metum það út frá textanum sjálfum, þá er minnst á Óðinn í erindi 138 og 143 í þriðju persónu. Kannski er ólíklegt að Óðinn ávarpi sjálfan sig í þriðju persónu. Á sama tíma er mögulegt að síðustu og fyrstu erindin hafi ólíkan uppruna. Síðustu erindin eru um galdra sem voru ætlaðir guðum. Það er spurning hvort dauðlegir menn voru til þess fallnir að gefa ráð um galdra? Í síðasta erindinu er sagt að Hávamál séu allþörf mönnum en óþörf jötnum; sá sem yrkir virðist hafa innsýn í báða heima. Í sama erindi nefnir höfundurinn "háva höll" sem Háva mál eru kveðin í. Sjálfur sé ég fyrir mér Snorra Sturluson í góðum fíling, að varpa fram eigin pælingum í hlöðnu húsi með moldargólfi.
ReplyDeleteHávi (hái) er eitt nafn Óðins.
ReplyDelete