Wednesday, April 17, 2013

4. Vatns er þörf

Vatns er þörf
þeim er til verðar kemur,
þerru og þjóðlaðar,
góðs um æðis
ef sér geta mætti
orðs og endurþögu.

1 comment:

  1. Fyrri parturinn er skýr. "Löð" er gestrisni, og "þjóðlöð" mikil gestrisni (svipað og "ráð" og "þjóðráð"). Aftur er áhersla á þjónustulund, það þykir mikilmannlegt. Jafnvel Óðinn "þjóðlaðar" gesti sína.

    Það er áhugavert að gesturinn þarf ekki bara líkamlegar þarfir eins og eld, föt, mat. Hann þarf líka gott æði (hugarfar), eða hlýtt viðmót gestgjafa.

    Í seinni partinum er áhersla á orð OG endurþögu, að þagna og gefa viðmælanda hljóð. Það er til marks um manngöfgi, annað en að tala án þess að hlusta.

    Þjóðlöð og endurþaga, ... þjóðareinkenni?

    þjóðlöð: gestrisni, þjónustulund
    æði: hugarfar
    endurþaga: þagna og hlusta

    ReplyDelete